þriðjudagur, 28. júní 2011

Sumarsólarsæla.

Sumarið er tími sundferða, göngutúra og lautarferða. Það jafnast ekkert á við að finna lyktina af nýslegnu grasinu, horfa á sólsetrið og heyra lækjarniðinn þegar maður vaknar á morgnanna í tjaldútilegu. Blómin, hlýjan frá sólinni sem hitar kroppinn og grillveislurnar. Ég elska sumarið - svo er nú ekki verra að vera í fæðingarorlofi á þessum tíma.