þriðjudagur, 30. ágúst 2011

Sýnishorn.

Smá sýnishorn úr myndatöku litla Kristbjargar- og Sindrasyni. Hann er dásamlegur - eins og þið sjáið :)

Mr. Handsome


Ég myndi bíða spennt ef ég væri þið. Ég fæ hreinlega ekki nóg af honum!


mánudagur, 29. ágúst 2011

Meiri bumbufegurð.

Við vorum alltaf að bíða eftir rétta mómentinu fyrir þessa myndatöku. Og loksins kom það þann 10. ágúst (þá fyrir akkúrat fyrir ári síðan var settur dagur hjá mér). Við skelltum okkur niður í Grasagarðinn í Reykjavík og tókum þessar líka fínu myndir. Ekki seinna vænna! Mér finnst ótrúlega gaman að taka myndir af svona verðandi foreldrum, þótt þetta hafi verið í fyrsta sinn sem ég tók svona myndir. Elska hvað maður sér tilhlökkunina og kærleikann í öllum myndunum. Þessi fyrsta er eitt af uppáhöldunum mínum!

 

Kristbjörg og Sindri

Kristbjörg og Sindri

Kristbjörg og Sindri

Kristbjörg og Sindri

Kristbjörg og Sindri


Þremur dögum síðar kom þetta litla ljós í heiminn. Fullkominn í alla staði!
My little friend


My little friend


Svo var ég líka að setja inn þennan líka fína "like" takka hér fyrir neðan :)

miðvikudagur, 24. ágúst 2011

Dásemdarheimili.

Ég dýrka (aðeins of mikið kannski, en allt er gott í hófi) að skoða myndir af fallegum heimilum. Ótrúlegt hvað maður getur gleymt sér tímunum saman á netflakki. Mér tekst alltaf að finna eitthvað sem mér langar í. Helst vildi ég að hægt væri að hoppa inn í myndirnar og búa þar, það væri algjör draumur. Nokkrar myndir sem ég hef safnað að mér...og bíðið alveg róleg því það eru fleiri á leiðinni bráðum (því valkvíðinn var á hæsta stigi og ekki vill ég drekkja ykkur í myndum :)

Klikkað flottir stólar, kistan og hnötturinn.

Mig langar mikið að hafa arinn í framtíðardraumahúsinumínu og þessi krúttlega bleika fuglamynd myndi smellpassa þar inn líka.

Myndaveggurinn í borðstofunni og fyrir ofan skenkinn og svo skenkurinn sjálfur. Ekki skemmir guli liturinn fyrir (sem er btw uppáhalds liturinn þessa dagana svo ekki láta ykkur bregða ef ég set inn fleiri myndir af einhverju gulu).

Þennan dásamlega rauða glerskáp verð ég hreinlega að eignast! Frekar töff og hentar fyrir bæði leirtau og bækur. Svo ég tali nú ekki um þetta veggfóður í eldhúsinu *kítlímaga*...

Held ég hafi bara aldrei séð jafn krúttlegt eldhús og þetta vinstra megin. Rauður og túrkis er svo flott blanda! Myndaveggurinn í því hægra megin heillar mig líka mikið.

Algjör snilld hvernig stólarnir eru notaðir sem náttborð. Lömpunum bara smellt á bakið, bækurnar á setunni og voilà!

Gul eldhúsinnrétting (og túrkisljósið og veggfóðrið), váááá! Bara að maður hefði nú kjarkinn í þetta :) 

Annað flott veggfóður og stóllinn er líka dásemd!


Einstaklega töff "sófi" (eða rúm eða?) og kúlulaga loftljósin klikkað flott.

Myndir héðan og þaðan: 

þriðjudagur, 23. ágúst 2011

Litla snót.

Þetta er hún fallega Lilja Karen, litla systir vinkonu minnar. Fékk að taka myndir af henni í Grasagarðinum um daginn og ég er ótrúlega sátt við útkomuna. Ég elska að taka myndir úti við. Litirnir eru fallegastir svona úti í dagsbirtunni. Svo er haustið á næsta leiti og þá verður ennþá skemmtilegra að taka myndir úti í öllum haustlitunum!

Lilja KarenLilja Karen

Lilja Karen


Lilja Karen



Three!

Lilja Karen



Sisters

Lilja Karen



laugardagur, 6. ágúst 2011

þriðjudagur, 2. ágúst 2011

Bumbufegurð.

Ég fékk þann heiður að taka myndir af Kristbjörgu vinkonu og fallegu bumbunni hennar. Stefnan var tekin á útimyndatöku en eins ótútreiknanlegt og veðrið á Íslandi er var það okkur ekki í hag í þetta skiptið. Það bíður betri tíma - en samt sem fyrst þar sem það styttist verulega í krílið litla.

Kristbjörg 34 weeks


Kristbjörg 34 weeks


Kristbjörg 34 weeks


Kristbjörg 34 weeks


Kristbjörg 34 weeks