föstudagur, 29. apríl 2011

Prinsessan mín.

Ég geri ráð fyrir að meirihluti ykkar hafi fylgst með konunglega brúðkaupinu. Allt svo hátíðlegt og fallegt. Ég er svo heppin að eiga eina litla sæta prinsessu. Tók þessar myndir af henni á páskadag í páskadressinu sem er 17 ára gamall kjóll af litlu systur minni. Mér finnst ótrúlega fallegt að geta klætt hana í gömul föt af mér og systrum mínum. Það er nóg til og svo eru þau svo vel með farin og falleg að ég hreinlega kemst ekki hjá því að nota þau.

Happy Easter

Happy Easter

fimmtudagur, 28. apríl 2011

Númer eitt.

Ég er búin að vera með þessa hugmynd í kollinum í alltof langan tíma. Ég ákvað því bara að láta verða að því að opna smá ljósmyndablogg - enda er ég með eðal lifandi ljósmyndaefni hér heima hjá mér alla daga :) Með hækkandi sól verður svo gaman að taka myndir útivið, hlakka mikið til!


Ég er líka algjör netgrúskari og mér finnst ég alltaf vera að finna eitthvað ægilega sniðugt á netinu, langar svo að deila því með einhverjum.

It's a beautiful morning!

The girl in the mirror

Just like heaven

Me